Velkomin á vefsvæði Spilaklúbbsins Steingríms á alnetinu. Steingrímur er félagsskapur 5 ungra manna sem hafa einsett sér að hittast reglulega og auðga hugann með spilun þroskandi borðspila á við Risk, Scrabble, og Singstar. Ekki er enn ljóst hvaða tilgangi þessi vefsíða mun gegna en í versta falli mun ég reglulega birta pistla um það hve pirrandi það er að vera eini maðurinn á Íslandi sem kann að keyra kl. 8 á morgnanna.

12.11.06

Það held ég nú.

Jæja piltar, eins og ég hef minnst á við ykkur stefni ég á að halda á heimili mínu síðbúna stofnhátíð Steingríms laugardaginn 2. desember, mat og almenna gleði.
Ég hef rætt þetta við alla meðlimi og hér geta menn síðan sett inn staðfestingu á komu sinni.

Athugið að einungis er hægt að staðfesta, afboðanir eru ekki teknar gildar.

Hilsen, formaðurinn.

 

Free Web Site Counter