Velkomin á vefsvæði Spilaklúbbsins Steingríms á alnetinu. Steingrímur er félagsskapur 5 ungra manna sem hafa einsett sér að hittast reglulega og auðga hugann með spilun þroskandi borðspila á við Risk, Scrabble, og Singstar. Ekki er enn ljóst hvaða tilgangi þessi vefsíða mun gegna en í versta falli mun ég reglulega birta pistla um það hve pirrandi það er að vera eini maðurinn á Íslandi sem kann að keyra kl. 8 á morgnanna.

25.7.07

Langþráðu spilakveldi Lokið!

Sest var að spilerí í húsakynnum Einars Liðþjálfa þann 24.7.2007. Fyrstur á staðinn var Himmz Herforingi en fljótlega fylgdu í kjölfarið Páll Liðhlaupi og Garon Marskálkur. Veigarnar voru í dýrari kantinum að þessu sinni þar sem rúmlega 15 ár eru síðan síðasta spilakveld var haldið. Spilað var Risk afbrigðið Continent Hold ´em. Eitthvað voru menn ryðgaðir í reglum þessa leiks og tók þó nokkuð langan tíma að koma sér inní leikinn, sérstaklega þar sem menn töldu að hárnákvæm uppröðun plast hermanna á útjaðri spilaborðsins mundi skipta sköpum í baráttunni sem fram undan var! En í stuttu máli var það ekki það sem réði úrslitum, heldur gífurleg herkænska og hugvitssemi hins magnaða spilar Himmz Herforingja. Himmz fékk þá göfugu mission að útrýma sjálfum sér, sem ekki er vænlegt en sem aukamission varð hann að ná til sín 24 löndum sem hann ákvað að fylgja frekar eftir. Hinir meðlimir fengu þau verkefni að ná til sín hinum og þessum heimsálfum sem ég man nú ekki nákvæmleg hverjar voru hjá hverjum. En í stuttu máli gerðist þetta, allir nema Heimsherforinginn fóru full geyst af stað og murrkuðu líftóruna úr hver öðrum og þar af leiðandi sjálfum sér ásamt því að tapa sér í veitingum. Ýmis bandalög voru stofnuð til að klekkja á andstæðingum. Á tímabili voru þrír meðlimir klúbbsins orðnir sameinaðir gegn Herforingjanum. En þeir máttu sér lítils gegn hinni hrikalegu Fjólubláu útlendingahersveit sem rúllaði til sín 24 löndum á frekar stuttum tíma og tortímdi svörtum Hersauði Einars Liðþjálfa í leiðinni. Sem sagt Himmz Herforingi er sigurvegari kveldsins og bið ég meðlimi Steingríms að lúta höfði næst þegar þeir koma á fund þessa merka manns og ávarpa hann Heil Himmz héðan í frá.

Lifið heil, Skál

Himmz Herforingi, a.k.a.Forseti alheimsins og víðar.

 

Free Web Site Counter