Velkomin á vefsvæði Spilaklúbbsins Steingríms á alnetinu. Steingrímur er félagsskapur 5 ungra manna sem hafa einsett sér að hittast reglulega og auðga hugann með spilun þroskandi borðspila á við Risk, Scrabble, og Singstar. Ekki er enn ljóst hvaða tilgangi þessi vefsíða mun gegna en í versta falli mun ég reglulega birta pistla um það hve pirrandi það er að vera eini maðurinn á Íslandi sem kann að keyra kl. 8 á morgnanna.

27.1.06

Manchester United 1

Liverpool 0

HA HA!

19.1.06

Gífurlegur léttir

Einar er byrjaður aftur í ræktinni. Vil þó taka það fram að eftir veikindi mín fyrr í vetur þar sem ég léttist um ein 5 kg hef ég haldið mér í hóflegri fjarlægð frá þriggja stafa tölunum. Á mánudaginn mætti ég galvaskur í Íþróttahús Háskóla Íslands. Byrjaði ég á að vikta mig og færði mig svo yfir á klósettsvæðið. Þar kúkaði ég sem mest ég mátti í um 10 mínútur. Fyrst ég hafði viktað mig áður en klósettferðin hófst og hægðirnar voru í meira lagi þá fannst mér það hafa ákveðið menntunargildi að kanna hversu mikið ég hefði lést við aðfarirnar. Viti menn, þegar ég steig aftur á viktina var ég hálfu kílói léttari en áður. Það er heilmikill kúkur.

Mig langaði bara svona að deila þessu með ykkur.

 

Free Web Site Counter