Velkomin á vefsvæði Spilaklúbbsins Steingríms á alnetinu. Steingrímur er félagsskapur 5 ungra manna sem hafa einsett sér að hittast reglulega og auðga hugann með spilun þroskandi borðspila á við Risk, Scrabble, og Singstar. Ekki er enn ljóst hvaða tilgangi þessi vefsíða mun gegna en í versta falli mun ég reglulega birta pistla um það hve pirrandi það er að vera eini maðurinn á Íslandi sem kann að keyra kl. 8 á morgnanna.

21.10.06

Hátíðarstemmning

Sælir piltar,

Ég vil byrja á að óska Gunnari Aroni, einum af yfirSteingrímunum fjórum til hamingju með frumburðinn sem kom í heiminn rétt fyrir miðnætti á mánudagskvöldið. Til lukku með það.

Í ljósi þessa verða dagsetningum fyrir síðbúna stofnhátíð(árshátíð) Spilaklúbbsins Steingríms sjálfsagt einhverja skorður settar. Ég sjálfur er sjálfsagt laus allar helgar og vil endilega fá ykkur kumpánana í heimsókn eitt föstudags- eða laugardagskvöld í svolítið karlakvöld.

Þá er bara að hefja pallborðsumræður um dagsetningar hér á þar til gerðu athugasemdasvæði.

Yfir og Út og Himmi minn gangi þínum mönnum vel á morgun, ég veit að þú óskar okkur þess sama.

Formaðurinn

 

Free Web Site Counter