Velkomin á vefsvæði Spilaklúbbsins Steingríms á alnetinu. Steingrímur er félagsskapur 5 ungra manna sem hafa einsett sér að hittast reglulega og auðga hugann með spilun þroskandi borðspila á við Risk, Scrabble, og Singstar. Ekki er enn ljóst hvaða tilgangi þessi vefsíða mun gegna en í versta falli mun ég reglulega birta pistla um það hve pirrandi það er að vera eini maðurinn á Íslandi sem kann að keyra kl. 8 á morgnanna.

15.2.06

Skemmtilegt

Þar sem það segir enginn neitt hér ákvað ég að segja eitthvað. Mér finnst staða Arsenal núna ansi merkileg. Þeim gengur mjög vel í meistaradeildinni en á sama tíma eru þeir í fimmta sæti í deildinni. Í fjórða sætinu er þeirra helsti nágrennisandstæðingur Tottenham. Þegar Tottenham tapar stigum og gefur Arsenal séns á að minnka muninn þá klikkar Arsenal á því.

Minnir þetta einhvern á Liverpool í fyrra. Ég er því að íhuga að spá því að Arsenal verði Evrópumeistari í vor.

 

Free Web Site Counter