Velkomin á vefsvæði Spilaklúbbsins Steingríms á alnetinu. Steingrímur er félagsskapur 5 ungra manna sem hafa einsett sér að hittast reglulega og auðga hugann með spilun þroskandi borðspila á við Risk, Scrabble, og Singstar. Ekki er enn ljóst hvaða tilgangi þessi vefsíða mun gegna en í versta falli mun ég reglulega birta pistla um það hve pirrandi það er að vera eini maðurinn á Íslandi sem kann að keyra kl. 8 á morgnanna.

23.6.06

Nýtt nafn á Á.B.H. Járnbindingar

Sælir bræður nær og fjær! Eins og sumir ykkar vita er ég orðinn næsthæstráðandi hjá honum Árna bróður mínum. Þar sem núverandi nafn fyrirtækisins, Á.B.H. Járnbindingar, er fremur óþjált þá stendur til að finna á það nýtt nafn. Ætla ég því að efna til samkeppni hér á þessum ágæta vef. Nafnið á helst ekki að vísa til starfssemi fyrirtækisins og lénið.is þarf að vera laust. Að sjálfsögðu þarf það að vera þjált og skiljast auðveldlega þegar maður segir það í síma þ.e. að maður þurfi ekki að endurtaka það þrisvar. Verðlaunin eru ekki af verri endanum. Ef þú kemur með nafn sem verður notað færðu kassa af dýrindisbjór og inneign upp á 100 kg af klipptu og beygðu járni.

Látið því hugann reika og finnið upp á einhverju sniðugu því til mikils er að vinna.

 

Free Web Site Counter